Miðvikudaginn 19. maí n.k. verður foreldrafundur allra yngri flokka Hamars í knattspyrnu haldinn í vallarhúsinu við Grýluvöll. Fundurinn hefst kl. 20:00 og verður um klukkustundar langur, en þar munu þjálfarar fara yfir mikilvæg mál fyrir komandi keppnistímabil, s.s. æfingatíma, mót sumarsins, fjáraflanir ofl. Fulltrúar stjórnar verða einnig á staðnum. Mikilvægt er að foreldrar mæti á þennan fund.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og bestu kveðjur,
Ólafur Jósefsson
Yfirþjálfari yngri flokka
Gsm. 821 – 4583